| Búa til reikning » |
Tíu góðar ástæður til að nota Gmail
Gmail gerir tölvupóst auðveldan og skilvirkan. Og jafnvel skemmtilegan.
1. Þér er illa við ruslpóst. Okkur líka.
Ekki eyða tíma í ruslpóst og óumbeðin skeyti. Gmail stoppar ruslpóst áður en hann kemst inn í pósthólfið þitt. Ef óvelkomið skeyti kemst í gegn, geturðu tilkynnt það og hjálpað okkur að gera ruslpóstsíurnar enn betri. Frekari upplýsingar
Horfa á myndskeið til að sjá hvernig við berjumst gegn ruslpósti.
2. Google snýst um leit og Gmail er engin undantekning
Notaðu Google leit innan Gmail til að finna skeytið sem þig vantar, alveg sama hvenær það barst eða var sent. Þú þarft ekki að eyða tíma í að flokka tölvupóstinn. Leitaðu að skeytum þegar þú þarfnast þeirra og við finnum þau fyrir þig.
3. Búðu til markviss samtöl
Hjá Gmail er hvert skeyti sem þú sendir geymt ásamt svörunum sem þú færð við því. Þetta samtalsyfirlit stækkar þegar ný svör berast, þannig að þú sérð skeytin þín alltaf í samhengi.
4. Innbyggt spjall: Texta-, tal- eða myndspjall.
Með einu handtaki geturðu spjallað í Gmail við fólk sem þú hefur sent tölvupóst. Sjáðu framan í viðmælanda þinn með tal- og myndspjalli í Gmail. Það eina sem þú þarft er vefmyndavél og lítil uppsetningarskrá sem aðeins tekur nokkrar mínútur að setja upp.
5. Flokkar, síur og stjörnur...frábært!
Gmail notar flokka til gera skipulagið sveigjanlegra. Samtal getur tilheyrt mörgum flokkum þannig þú þarft ekki að velja neina ákveðna möppu fyrir hvert skeyti. Þú getur einnig búið til síur sem stjórna því síðan sjálfvirkt hvað verður um skeyti sem berast. Stjörnumerking á skeytum er önnur aðferð til að skipuleggja pósthólfið þitt. Svo eru stjörnur líka svo fallegar.
6. Náðu í póst á ferðinni
Sá tími þegar nauðsynlegt var að nota tölvu til að kíkja á tölvupóstinn sinn er löngu liðinn. Núna geturðu notað Gmail í fartækinu þínu til að skoða tölvupóst hvar sem er.
7. Nóg af plássi (og það fer stöðugt vaxandi)
Við vinnum stöðugt að því að auka ókeypis geymslurýmið sem við bjóðum upp á í Gmail. Ef þú vilt fá ennþá meira geymslurými geturðu líka alltaf keypt viðbótarpláss. Með allt þetta geymslupláss geturðu sett skeytin í geymslu í staðinn fyrir að eyða þeim. Þannig fyllist pósthólfið ekki en skeytin eru áfram til staðar þannig að hægt er að leita í þeim ef þig vantar eitthvað síðar meir.
8. Við birtum auglýsingar - en bara þessar góðu
Hjá Gmail sérðu aldrei sprettiglugga eða óviðkomandi auglýsingaborða. Þess í stað birtum við textaauglýsingar og viðeigandi tengla á efni sem þér gæti þótt hentugt og áhugavert. Kerfið okkar, rétt eins og ruslpóstsían, skannar innihald skeytanna í leit að leitarorðum þannig að við getum birt viðeigandi upplýsingarnar. Frekari upplýsingar um hversu umhugað okkur er um meðferð persónuupplýsinga.
9. Sparaðu tíma
Nýttu þér flýtitengiliði og flýtivísanir í Gmail til að renna hraðar í gegnum tölvupóstinn. Og hafðu í huga að þú getur fundið tölvupóst hratt og örugglega með því að nota leitina í Gmail sem er keyrð af leitartækni Google.
10. Er þetta allt ókeypis?
Já, einmitt! Við vitum að það er algjört brjálæði en okkur líkar bara svo vel við þig.
